One in Icelandic for my folks back home…

Núna eru liðnar 5 vikur frá því að við komum hingað 25 KaosPilotar + 2 Teamleaders. Ég get léttilega sagt að ég er núþegar reynslunni ríkari og ég hlakka mikið til komandi reynslu sem Indland hefur uppá að bjóða.

Ég ásamt 7 bekkjafélögum vinn við verkefni sem heitir Pangea Day. Þetta er alþjóðlegt kvikmyndafestival sem verður sýnt allstaðaðar í heiminum á sama tíma á sama degi. (10 maí 2008) www.pangeaday.org. Verkefnið gengur þannig fyrir sig að það er opið öllum að halda það samtímis sem það er sýnt í sjónvarpstöðvum o.s.frv. Það er sýnt beint frá 8 borgum í heiminum með tónlistamönnum og áhugaverðum fyrirlesurum. Ein af þessum borgum er Mumbai, við erum þó ekki hluti af þeirri samkomu. Við erum að setja upp sýningar í einu af fátækustu hverfum heims Dharavi.

Samtímis sem við vinnum að þessu verkefni erum við að setja saman söfnunarstað fyrir alla í heiminum sem vilja segja hverju þeir myndu vilja breyta. (meiri upplýsingar um það seinna meir)

Þetta Indverska fólk er samt alveg gjörsamlega klikk! Þetta er næstum alveg eins og ég hafði ýmindað mér áður en við lögðum í þessa reisu. Það eru rottur á götum og einnig í hótelum, það eru kakkalakkar út um allt, maður borðar með hægri hönd ekki vinstri. Það eru fílar á götu (þó ekki ákkúrat hérna hjá mér, en annarstaðar þar sem ég hef verið) og beljur út um allt.

Ég var að koma frá lestarstöðinni eftir að hafa keypt miða til Trivendrum (næstum eins langt suður og mögulegt er) Það tók ekki nema klukkutíma að kaupa hann. Það er nýtt met áður hefur það tekið allt að 2 tíma til að fá einn miða, en þetta var kannski vergna þess að ég keypti bara eina aðra leið. Þetta þýðir að ég er að fara í 32 klukkutíma lestarferð niður í heitasta helvíti. Fara á úlfvalda bak og þess háttar. Reyndar eru peningarnir farnir að verða skornir að skammti þar sem maður þarf að múta öllum til að fá eitthvað gert.

Já mútur það er eitthvað sem ég hef lært meira um, ég er búinn að komast að því að ef ég múta 2 köllum 100 ruppies hvorum, er það alveg vita gagnslaust ef þú rekst á yfirmann þeirra sem tekur 200 ruppies og þá gildir það fyrir alla hina líka. Svo já fullt af svona bévítans mútum til að komast að þeim sem ráða og fá einhverju í framkvæmd.

Annars er svo rosalega mikið sem ég gæti skrifað um núna. td að félagi Elias er veikur hérna við hlið mér og ég pantaði lækni fyrir hann upp á herbergi, hann kom gaf honum 2 stórar sprautur í rassinn og hringdi í annan lækni sem kom og tók prufur. Það er ekkert óvenjulegt hérna…
Apar í bandi, kindur í bandi, beljur í bandi.
Lifandi kjúklingar á veitingastöðum, rottur á baðherbergjum og smá eðlur í rúmminu, þetta er allt daglegt brauð í Indlandi (og ég bý fínt haha)

Svona til að ljúka þessu inleggi þá legg ég nokkrar myndir af lífinu hérna.
Bið að heilsa öllum sem lesa þetta ekki og þið megið skila til þeirra að þau eigi að gera það=)

Bæjó spæjó
Finnur frændi, sonur, kunningji, sonasonur og allt hitt

Api sem stal vatni hjá bekkjarfélaga mínum

Vinna með hópfélögunum

Beljur út um gjörsamlega allt

Leave a Reply